Gunnlaugur nýr sveitarstjóri Borgarbyggðar

Gunnlaugur Júlíusson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Borgarbyggðar.
Gunnlaugur Júlíusson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Borgarbyggðar. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Gunnlaugur Auðunn Júlíusson hefur verið ráðinn sveitarstjóri í Borgarbyggð, en byggðaráð Borgarbyggðar samþykkti það á fundi sínum í morgun. Gunnlaugur hefur frá árinu 1999 starfað hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga sem sviðsstjóri Hag- og upplýsingasviðs. Þar áður starfaði Gunnlaugur sem sveitarstjóri á Raufarhöfn.

Gunnlaugur er þekktur hér á landi fyrir að vera einn fremsti langhlaupari landsins, en hann hefur hlaupið fjölda svokallaðra ofurmaraþona. Meðal annars hljóp hann 400 kílómetra hlaup árið 2013.

Gunnlaugur lauk búfræðinámi á Hvanneyri  árið 1975 og nam landbúnaðarhagfræði í Svíþjóð og Danmörku á árunum 1980-1987. Hann lauk námi í verðbréfamiðlun við Háskólann í Reykjavík árið 2001 og stundaði meistaranám við fjármálaskor viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands á árunum 2002-2005. Gunnlaugur er giftur Sigrúnu Sveinsdóttur, lyfjafræðingi og þau eiga þrjú uppkomin börn. Gunnlaugur kemur til starfa um mánaðarmótin apríl/maí og mun flytja í Borgarbyggð.

Byggðarráð bókaði jafnframt þakkir til umsækjenda um starf sveitarstjóra Borgarbyggðar, 26 hæfir einstaklingar sóttu um starfið og var það ánægjulegt að sjá þann mikla áhuga sem á starfinu er.

Gunnlaugur er einn fremsti langhlaupari Íslands.
Gunnlaugur er einn fremsti langhlaupari Íslands. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert