Myrti konuna og svipti sig lífi

Frá Akranesi.
Frá Akranesi. mbl.is/Árni Sæberg

Karlmaður á sjötugsaldri skaut konu sína til bana í íbúð í fjölbýlishúsi á Akranesi í nótt og svipti sig síðan lífi. Konan var á sextugsaldri. 

Lögreglumenn brutu sér leið inn í íbúðina um hádegisbil í dag og fundu lík fólksins. Engin tilkynning barst um skothvelli eða hávaða í nótt. Ekki er vitað til þess aðrir en maðurinn og konan hafi búið í íbúðinni. 

Þegar konan mætti ekki til vinnu í morgun reyndi vinnuveitandi hennar að hafa samband við hana. Eftir ítrekaðar og árangurslausar tilraunir vart haft samband við lögreglu sem braut sér leið inn í búðina. 

Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Vesturlandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka