Funda með Sigmundi eftir frí

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsstjórn Framsóknarflokksins ákvað á fundi sínum í gærkvöldi að halda vorfund miðstjórnar flokksins um mánaðarmótin maí/júní þegar formaður flokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hefur snúið aftur úr leyfi „og haft tækifæri til að hitta flokksfélögin til að skýra mál sitt,“ skrifar Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra á Facebook-síðu sína.

Sigmundur Davíð fór í frí fljótlega eftir að hann sagði af sér sem forsætisráðherra í kjölfar uppljóstrana úr Panama-skjölunum um aflandsfélag hans.

Miðstjórn ákveður hvenær flokksþing fer fram. Ekkert hefur þó verið ákveðið í þeim efnum, sagði Ásmundur Einar Daðason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, í fréttum Bylgjunnar í hádeginu. Sagði hann því ekkert ákveðið um hvort eða hvenær næstu formannskosningar fara fram. Boðað hefur verið til Alþingiskosninga í haust. 

Hjálm­ar Bogi Hafliðason hef­ur tekið sæti Sig­mund­ar á Alþingi á meðan hann er í leyfi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert