Tugir bifreiða í ógöngum

mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Tugir bifreiða hafa lent í ógöngum í dag og í kvöld í umdæmi lögreglunnar á Húsavík. Hafa þær setið fastar meðal annars á veginum um Möðrudalsöræfi, Dettifossleiðinni og veginum á milli Mývatns og Egilsstaða. Hugsanlegt er að síðastnefndu leiðinni verði lokað síðar í kvöld.

Talsverðum snjó hefur kyngt niður á svæðinu í dag og er spáð áframhaldandi snjókomu í nótt og á morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni hafa björgunarsveitir verið kallaðar út til að koma ferðalöngum til hjálpar. Í einhverjum tilfellum hafa bifreiðar verið skildar eftir og fólkið flutt í skjól. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert