Í kvöld fór fram fyrsta bikarmót sumarsins í fjallahjólreiðum, Morgunblaðshringurinn, sem haldið var af Hjólreiðafélagi Reykjavíkur í samstarfi við Morgunblaðið. Keppt var á 6,8 km braut og hjóluðu karlar fjóra hringi, konur þrjá hringi, og B-flokkur og unglingar tvo hringi.
Sigurvegarar í A-flokkum voru Ingvar Ómarsson og Ágústa Edda Björnsdóttir, en í B-flokk kvenna Agnes Ósk Sigmundardóttir. Í unglingaflokki karla sigraði Gústaf Darrason en Helga Lísa Kvaran og Davíð Jónsson í barnaflokki.