Snjóþekja og hálka víða á vegum

Vegir eru greiðfærir á Suður- og Vesturlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni en þó eru hálkublettir á Holtvörðuheiði og Bröttubrekku. Snjóþekja er á Laxárdalsheiði.

Á Vestfjörðum er hálka eða hálkublettir á flestum fjallvegum og sumsstaðar skafrenningur. Snjóþekja er  norður í Árneshrepp. Að mestu er orðið autt á vegum á Norðurlandi vestra en þó er snjóþekja yst á Siglufjarðarvegi. Hálkublettir eru nokkuð víða á Norðausturlandi og snjóþekja á Hólasandi.

Austanlands er snjóþekja, hálka eða hálkublettir á fjallvegum en autt á láglendi. Greiðfært er með suðausturströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert