Til skoðunar að breyta sjónvarpshúsinu í hótel

Fasteignafélagið Reitir kannar nú möguleika á því að breyta sjón- …
Fasteignafélagið Reitir kannar nú möguleika á því að breyta sjón- varpshúsinu gamla við Laugaveg í hótel en húsið er í eignasafni félagsins. mbl.is/Árni Sæberg

Til skoðunar er að breyta gamla sjónvarpshúsinu við Laugaveg í Reykjavík í hótel. Þetta staðfestir Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, í samtali við Morgunblaðið, en húsið er í eignasafni fasteignafélagsins.

„Við höfum verið að velta þessum möguleika fyrir okkur og látið vinna úttekt á því hvort þessi framkvæmd sé hagkvæm,“ segir Guðjón og bendir á að langtíma leigusamningar séu flestir að losna á næstu mánuðum.

Að sögn Guðjóns hefur að vísu ekki verið tekin endanleg ákvörðun um áðurnefnda hóteluppbyggingu innan stjórnar félagsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert