Fékk aðeins 60 þúsund krónur á mánuði

Konunni var haldið nauðugri í starfi á hóteli á höfuðborgarsvæðinu
Konunni var haldið nauðugri í starfi á hóteli á höfuðborgarsvæðinu mbl.is/Styrmir Kári

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál erlendar konu sem var haldið nauðugri í starfi á hóteli á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar tvö.  Konan var þvinguð til að gista í herbergi með yfirmanni sínum sem hótaði henni að annars yrði hún handtekin. Konan fékk aðeins tæpar 60 þúsund krónur í mánaðarlaun.

Sinnti hún ýmsum störfum á hótelinu og var við vinnu nánast á hverjum degi í fimm mánuði en á þeim tíma fékk hún alls 295.000 krónur í laun eða um 59.000 krónur á mánuði.

Lögregla vildi ekki veita fréttastofu Stöðvar tvö nánari upplýsingar um rannsókn málsins en konan er enn hér á landi. Hún starfar þó ekki lengur á umræddu hóteli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert