Nafn bílstjórans sem lést

Rútubílstjórinn sem lést í gærkvöldi eftir að hafa fengið hjartaáfall er hann ók rútu eftir veginum við Seljalandsfoss hét Þórður Vagnsson.  Hann var 47 ára gamall.

Þórður lætur eftir sig konu, dóttur og uppkominn son.

Lögreglan á Suðurlandi staðfesti þetta í samtali við mbl.is en búið er að hafa samband við fjölskyldu Þórðar. 

Frétt mbl.is: Í áfalli vegna andláts bílstjórans

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert