Sakfelld fyrir að stela snyrtivörum

Héraðsdómur Norðurlands Eystra
Héraðsdómur Norðurlands Eystra mbl.is/Skapti

Rúmlega þrítug kona var í dag sakfelld í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að hafa stolið úr verslun Hagkaups á Akureyri snyrtivörum, ilmvötnum, sokkum, hálsklút og öðrum fatnaði að verðmæti samtals um 52 þúsund krónur.

Hlaut konan 30 daga skilorðsbundið fangelsi, en hún hafði ekki áður gerst sek um refsiverða háttsemi. Hún játaði brot sitt og óskaði að eigin frumkvæði eftir því að greiða fyrir munina og var litið til þess við ákvörðun refsingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert