Jafnréttisviðurkenning til Reykjavíkurborgar og Kvennaathvarfs

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhenti viðurkenningarnar við hátíðlega athöfn …
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhenti viðurkenningarnar við hátíðlega athöfn í gær. ljósmynd/Reykjavíkurborg

Reykjavíkurborg og starfsfólk borgarinnar og Samtök um kvennaathvarf hafa hlotið jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs árið 2016. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhenti viðurkenningarnar við hátíðlega athöfn í gær.

„Reykjavíkurborg og starfsfólk borgarinnar fá jafnréttisviðurkenningu 2016 vegna brautryðjendastarfs að innleiðingu kynjaðrar fjárhags- og starfsáætlunar í starfsemi borgarinnar og fyrir að þróa þá aðferðarfræði áfram í þeim hagræðingaraðgerðum sem borgin stendur nú frammi fyrir. Þetta starf felur í sér mikilvægan lærdóm og hvatningu fyrir sveitarfélög og ríkisstofnanir,“ segir í fréttatilkynningu.

Þá segir að Samtök um kvennaathvarf hljóti jafnréttisviðurkenningu 2016 fyrir að hafa starfrækt Kvennaathvarf frá árinu 1982. Samtökin séu grasrótarsamtök sem hafi sýnt mikla þrautseigju í rekstri athvarfsins og náð að þróa starfsemina þannig að hún geti tekist á við áskoranir hvers tíma. Hér megi sérstaklega nefna starf Kvennaathvarfsins í þágu kvenna af erlendum uppruna. „Kvennaathvarfið hefur gegnt ómetanlegu hlutverki sem athvarf fyrir konur og börn sem verða að flýja heimili sitt vegna ofbeldis. Þúsundir kvenna hafa leitað til athvarfsins frá stofnun þess, fundið þar öryggi og hlýju og svigrúm til að vinna úr sínum málum. Í athvarfinu er unnið faglegt starf, oft við afar krefjandi aðstæður, og athvarfið hefur einnig lagt áherslu á fræðslu um eðli og afleiðingar ofbeldis í nánum samböndum,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert