Þögn Samtaka atvinnulífsins „ærandi“

Framsýn segir kjarasamningsbrot og skattaundanskot koma upp aftur og aftur, …
Framsýn segir kjarasamningsbrot og skattaundanskot koma upp aftur og aftur, ekki síst í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn og trúnaðarmannaráð stéttarfélagsins Framsýnar gagnrýna Samtök atvinnulífsins fyrir áhugaleysi um vinnustaðaeftirlit. Á sama tíma og kjarasamningsbrot og skattaundanskot komi ítrekað upp sé þögn samtakanna ærandi.

Í ályktun Framsýnar kemur fram að undanfarna mánuði hafi Alþýðusamband Íslands og aðildarsamtök þess unnið að sérstöku átaki gegn svartri atvinnustarfssemi. Markmið þess sé að verja kjör og réttindi á íslenskum vinnumarkaði fyrir allt launafólk. Hert eftirlit á vinnustöðum og aukin samvinna við ríkisskattstjóra, Vinnumálastofnun, Vinnueftirlitið og lögregluna hafi skilað miklum árangri.

Stéttarfélagið segist fá mikla hvatningu varðandi hert vinnustaðaeftirlit frá stjórnendum fyrirtækja sem búa við það að vera í samkeppni við önnur fyrirtæki sem ekki fara að lögum.

Því sé þögn Samtaka atvinnulífsins ærandi á sama tíma og kjarasamningsbrot og skattaundanskot, ekki síst í ferðaþjónustu og byggingariðnaði, komi aftur og aftur upp á borð eftirlitsmanna og séu nær daglega í fréttum fjölmiðla.

„Framsýn, stéttarfélag skorar á Samtök atvinnulífsins að axla ábyrgð og taka virkan þátt í verkefninu og álítur það ekki sæmandi samtökum sem ætlað er að gæta hagsmuna ábyrgra fyrirtækja í atvinnurekstri að segja PASS og sitja hjá í svo veigamiklum aðgerðum,“ segir í ályktun stjórnar og trúnaðarmannaráðs Framsýnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert