Fisflugvél valt við Úlfarsfell

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað til er fisflugvél hlekktist á í lendingu við Úlfarsfell um ellefuleytið í morgun með þeim afleiðingum að vélin valt.

Tveir voru í vélinni og þurfti að flytja annan þeirra á Landspítalann með sjúkrabíl, en ekki er talið að meiðsl hans séu alvarleg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert