Mótframlag hækkar um 3,5%

Atvinnurekendum verður áfram skylt að skila öllu skyldutryggingariðgjaldinu til lífeyrissjóðs …
Atvinnurekendum verður áfram skylt að skila öllu skyldutryggingariðgjaldinu til lífeyrissjóðs viðkomandi launamanns. Sjóðfélagar munu því snúa sér beint til viðkomandi lífeyrissjóðs ef þeir óska eftir því að nýta sér þennan rétt, en lífeyrissjóðir sem starfa á grundvelli kjarasamninga ASÍ og SA munu setja upp sérstakar deildir um þessa bundnu séreign. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð hækkar um samtals 3,5% á samningstíma kjarasamningi aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sem undirritaður var 21. janúar 2016.  Hækkunin kemur til framkvæmda í þremur áföngum, 0,5% stig þann 1. júlí 2016, 1,5% stig hinn 1. júlí 2017 og um 1,5% stig hinn 1. júlí 2018 og nær til þeirra lífeyrissjóða sem starfa á grundvelli kjarasamnings þessara aðila um lífeyrismál frá árinu 1969 og 1995. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ASÍ.

Skylduiðgjald til lífeyrissjóðs samkvæmt samningi þessum verður þá samtals 15,5% frá 1. júlí 2018, sem skiptist í 4% iðgjald launamanns og 11,5% mótframlag atvinnurekanda.

Samkvæmt fyrrnefndum verður einstaklingum heimilt að ráðstafa, að hluta eða fullu, auknu framlagi launagreiðanda í bundinn séreignasparnað í stað samtryggingar til að auðvelda launafólki starfslok og auka sveigjanleika.

Atvinnurekendum verður áfram skylt að skila öllu skyldutryggingariðgjaldinu til lífeyrissjóðs viðkomandi launamanns. Sjóðfélagar munu því snúa sér beint til viðkomandi lífeyrissjóðs ef þeir óska eftir því að nýta sér þennan rétt, en lífeyrissjóðir sem starfa á grundvelli kjarasamninga ASÍ og SA munu setja upp sérstakar deildir um þessa bundnu séreign.

Ljóst er að núverandi löggjöf um starfsemi lífeyrissjóða hefur ekki að geyma ákvæði sem heimilar sjóðsfélögum eða lífeyrissjóðum að ráðstafa hluta af skylduiðgjaldi í bundna séreign.  Einnig er ljóst að tíminn fram til 1. júlí 2016 er ekki nægur til að lífeyrissjóðirnir geti sett upp gagnsætt og skilvirkt kerfi svo sjóðsfélagar geti tekið upplýsta ákvörðun um að ráðstafa hluta skyldutryggingariðgjalds í bundna séreign og áhrif þeirrar ákvörðunar á samsetningu réttinda sinna. 

Því er óhjákvæmilegt annað en að fresta gildistöku heimildar til ráðstöfunar í bundna séreign til 1. júlí 2017 en þá verði launamanni heimilt að ráðstafa allt að 2% stigum í bundna séreign. Frá og með 1. júlí 2018 verði launamanni heimilt að ráðstafa til viðbótar allt að 1,5% stigum til bundinnar séreignar eða samtals allt að 3,5% stigum.

Hækkun framlags atvinnurekenda til lífeyrissjóðs um 0,5% frá og með 1. júlí 2016 verður fyrst um sinn ráðstafað í samtryggingu viðkomandi lífeyrissjóðs þar til valrétturinn tekur gildi frá og með 1. júlí 2017.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert