Ferðalangurinn er fundinn

Björgunarsveitarfólk að störfum.
Björgunarsveitarfólk að störfum. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Ferðalangur sem björgunarsveitir leituðu í kvöld á Arnarvatnsheiði er fundinn samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.

Björgunarsveitir á Vesturlandi og Húnavatnssýslum voru kallaðar út eftir að maðurinn skilaði sér ekki til samferðamanna sinna á fyrirframákveðnum tíma. Höfðu þeir samband við lögreglu sem óskaði eftir aðstoð björgunarsveita.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert