Öxnadalsheiði hefur verið opnuð

mbl.is/ Malín Brand

Búið er að aflétta lokun vegarins um Öxnadalsheiði en honum var lokað vegna umferðarslyss sem þar varð í morgun. Umferð fór um Ólafsfjarðarveg meðan vegurinn var lokaður og olli nokkrum töfum í Siglufjarðargöngum og Ólafsfjarðargöngum.

Einn lést í slysinu en tildrög þess eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.

Frétt mbl.is: Banaslys á Öxnadalsheiði

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert