Héðinn fannst látinn

mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Héðinn Garðarsson sem lýst var eftir fyrir helgi fannst látinn.

Í gær var greint frá því að hann væri kominn í leitirnar en samkvæmt tilkynningu lögreglunnar á Norðurlandi eystra var það ósk aðstandenda að upplýst væri að hann hefði verið látinn þegar hann fannst.

Lögreglan ítrekar þakkir til þeirra sem aðstoðuðu við leitina að Héðni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert