Þakið gaf sig

mbl.is

Það liggur ljóst fyrir í öllum helstu meginatriðum hvernig banaslysið í Vatnagörðum í Reykjavík á mánudaginn bar að höndum og hverjar voru orsakir þess, að sögn Eyjólfs Sæmundssonar, forstjóra Vinnueftirlitsins. Rannsókn málsins er þó ekki lokið.

Maður á sextugsaldri lést þegar hann féll niður um þak á iðnaðarhúsnæði, en hann var að skipta um þakplötur á húsnæðinu. Skemmdir voru á þakinu en þær voru þess eðlis að þakið gaf sig undan þunga mannsins með þeim afleiðingum að hann féll niður.

Fallið var hátt, yfir tíu metrar, og lést maðurinn samstundis. Nokkur vitni voru að slysinu, samkvæmt upplýsingum mbl.is.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Vinnueftirlitið hafa málið til rannsóknar.

Frétt mbl.is: Féll niður um þak og lést

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert