Annarri þraut liðakeppninnar lokið

Svanhildur, Hjördís, Sigurður og Sólveig úr liði CrossFit XY.
Svanhildur, Hjördís, Sigurður og Sólveig úr liði CrossFit XY. Skjáskot/Facebook

Annarri þraut í liðakeppni heimsleikanna í crossfit er nú lokið. Keppt var í sjósundi, en eitt íslensk lið er skráð til leiks.

Íslendingalið Crossfit XY hafnaði í 37. sæti í þrautinni, en liðið lenti í 31. sæti í fyrstu þraut keppninnar í gær. Liðið er nú í 35. sæti í heildarkeppninni.

Tveir Íslendingar, þau Oddrún Eik Gylfadóttir og Eiríkur Baldursson, keppa fyrir danska liðið Crossfit Nordvest á leikunum. Hafnaði lið þeirra í þriðja sæti í sundþrautinni í dag og er nú í sjöunda sæti í heildarkeppninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert