Björgvin Karl Guðmundsson hafnaði í áttunda sæti í einstaklingsflokki karla á heimsleikunum í crossfit sem lauk í gærkvöldi. Björgvin hlaut alls 735 stig. Sigurvegari einstaklingsflokks karla var Bandaríkjamaðurinn Mathew Fraser með 1096 stig, 197 stigum á undan Ben Smith sem hafnaði í öðru sæti.
Þá varð Íslendingaliðið Crossfit XY í 34. sæti.
Eins og kom fram í gærkvöldi bar Katrín Tanja Davíðsdóttir sigur úr býtum í einstaklingsflokki kvenna, annað árið í röð. Katrín Tanja hlaut alls 984 stig, Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir hafnaði í þriðja sæti með samtals 919 stig. Þá hlaut Annie Mist Þórisdóttir 682 stig og varð í 13. sæti en Þuríður Erla Helgadóttir 563 stig og hafnaði í 19. sæti.
Stigagjöfina í heild má sjá hér.