Píratar með 26,8% fylgi

Kort/MMR

Samkvæmt niðurstöðum könnunar MMR sem framkvæmd var dagana 15. til 22. júlí mældust Píratar og Sjálfstæðisflokkurinn með mest fylgi. Fylgi Pírata mældist nú 26,8%, borið saman við 24,3% í síðustu könnun (sem lauk 4. júlí) og Sjálfstæðisflokkurinn mældist nú með 24,0% fylgi, borið saman við 25,3% í síðustu könnun.

Fylgi Vinstri-grænna dalaði nokkuð frá síðustu mælingum og stendur nú í 12,9% borið saman við 18,0% í síðustu könnun og 17,2% þar áður (lauk 16. júní).  Viðreisn bætti við sig nokkru fylgi frá síðustu könnun og mælist nú með 9,4% fylgi, borið saman við 6,7% í síðustu könnun.

Samfylkingin mældist nú með um 8,4% fylgi, borið saman við 10,9% í síðustu könnun og Framsóknarflokkurinn mældist með 8,4% fylgi, borið saman við 6,4% í síðustu könnun.

Björt framtíð mældist nú með 3,9% fylgi, borið saman við 2,9% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist um og undir 2%.

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“

Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“

Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“ Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 80,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,2%), myndu skila auðu (5,1%), myndu ekki kjósa (1,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,4%). 

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 33,9% sem er sami stuðningur og í síðustu könnun (sem lauk þann 4. júlí síðastliðinn) og mældist 34,8% í könnuninni þar áður (lauk 16. júní síðastliðinn).

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 906 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 15. til 22. júlí 2016

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert