Varðskipið Týr var komið að áströlsku skútunni sem óskað hafði aðstoðar vegna leka rúmlega tíu í gærkvöldi. Varðskipsmenn fluttu tæpa 220 lítra af eldsneyti yfir til skútunnar og einnig könnuðu þeir skemmdir á henni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Að lokinni eldsneytisgjöf og mati á skemmdum var ákveðið að skútan héldi til hafnar á Íslandi til viðgerðar en ekki var talin þörf á að varðskipið fylgdi skútunni. Skútan er í samfloti með annarri skútu sem mun fylgja henni til hafnar og eru þær væntanlegar seinnipartinn á morgun, fimmtudag.
Fyrri frétt mbl.is: Eldsneytislaus vestur af Reykjanesi