Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna og nefndarmaður í utanríkismálanefnd, hefur óskað eftir fundi í nefndinni vegna neyðarástands og þróunar mála í Tyrklandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá VG.
„Það er því miður rík ástæða til að kalla saman utanríkismálanefnd Alþingis til að ræða það grafalvarlega ástand sem nú ríkir í Tyrklandi og möguleg viðbrögð við því,“ er haft eftir Steinunni Þóru í tilkynningunni.
Steinunn óskar eftir því að fundurinn verði haldinn hið fyrsta.
„Þingflokkur VG sendi nýverið frá sér yfirlýsingu þar sem staða mála í Tyrklandi var fordæmd harðlega; fjöldahandtökur þar í landi, uppsagnir þúsunda óbreyttra borgara og skerðingu á ferðafrelsi á grundvelli pólitískra skoðana. Þingflokkur VG leggur einnig áherslu á að Lilja Dögg Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra, nýti hvert tækifæri á alþjóðlegum vettvangi til að koma skýrt á framfæri áhyggjum íslenskra stjórnvalda og íslensks almennings af mannréttindabrotum í Tyrklandi,“ segir í tilkynningunni.