Segir Pírata vilja skerða rétt

Jakob Frímann Magnússon með Stuðmönnum á tónleikum í Hörpu
Jakob Frímann Magnússon með Stuðmönnum á tónleikum í Hörpu mbl.is/Ómar Óskarsson

Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður og formaður stjórnar Félags tónskálda og textahöfunda telur stefnu Pírata fela í sér einbeittan vilja til að skerða eignar- og ráðstöfunarrétt höfunda á eigin hugverkum.

Í stefnunni kemur meðal annars fram að sæmdarrétti skuli breytt og að gildistími höfundarréttar skuli styttur úr 70 árum í 20 ár. Stefnan var mótuð fyrir kosningarnar árið 2013, en að sögn Ástu Guðrúnar Helgadóttur, þingmanns Pírata, er von á nýrri stefnu um miðjan ágúst.

Í Morgunblaðinu í dag segir Jakob að ekki gildi önnur lögmál um eignarréttinn í netheimum en í raunheimum. Píratar haldi öðru fram. „Höfundarréttur er vel varðaður í 250 lykillöndum og mörkuðum heimsins. Við þurfum ekki íhlutun Pírata eða annarra til að stafa ofan í okkur hvernig við eigum að fara með þessi mál,“ segir Jakob.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert