Ölvun og óspektir í flugstöðinni

Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl/ Sigurgeir Sigurðsson

Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum sjö dögum sinnt sex útköllum í flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna ölvunar og óspekta flugfarþega.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að í gær hafi ölvuðum farþega verið neitað um að fara í flug til Varsjár, þar sem hann hafði angrað farþega í flugvél sem hann kom með hingað til lands.

Í fyrradag hafði lögregla afskipti af öðrum flugfarþega sem lét öllum illum látum við afgreiðsluhlið í flugstöðinni. Sá ætlaði til Las Palmas en fékk ekki að fara um borð í vélina vegna ástands síns. Hann brást afar illa við afskiptum lögreglu, sem handtók hann og færði hann á lögreglustöð, þar sem hann var vistaður í fangaklefa.

Í gær var lögregla enn kölluð í flugstöðina vegna sama manns. Segir lögreglan að hann hafi enn verið ölvaður og með leiðindi við fólk sem á vegi hans varð. Hann var handtekinn aftur og færður í fangaklefa enn á ný.

Tveir farþegar til viðbótar, sem voru á leið til Bandaríkjanna, voru svo illa á sig komnir að sögn lögreglunnar að ekki þótti stætt á að hleypa þeim um borð fyrr en þeir hefðu sofið úr sér.

Loks datt ölvaður farþegi, sem kom frá Washington á leið til Stokkhólms, í gólfið í flugstöðinni og skarst lítillega í andliti. Gert var að sárum viðkomandi og fékk hann ekki að halda ferð sinni áfram að svo stöddu, heldur lá leiðin í fangaklefa um sinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert