Á gjörgæslu eftir árekstur við steypubíl

Kona á fimmtugsaldri dvelur á gjörgæslu Landspítalans eftir árekstur fólksbíls og steypubíls á Bakkavegi skammt frá Voðmúlastöðum í Rangárvallasýslu í morgun. Kona á þrítugsaldri, sem einnig var í bílnum, er á bráðamóttöku spítalans.

Konurnar voru fluttar með þyrlu Landshelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi. Ekki er vitað nákvæmlega hvað olli slysinsu.  

Frétt mbl.is: Tveir fluttir á sjúkrahús með þyrlu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert