Vegna framkvæmda Veitna við fráveitu verður Geirsgata lokuð við Tryggvagötu frá klukkan 21:00 í kvöld og fram til morguns.
Vegfarendum er bent á hjáleið um Tryggvagötu. Vegfarendur geta einnig búist við þrengingum á Geirsgötu meðan á framkvæmdunum stendur, segir í tilkynningu frá Veitum.