Bónusgreiðslur Kaupþings samþykktar

Starfsmennirnir munu fá samtals 1,5 milljarða í bónusa.
Starfsmennirnir munu fá samtals 1,5 milljarða í bónusa. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Aðalfundur eignarhaldsfélags Kaupþings samþykkti tillögu um bónusgreiðslur til tuttugu starfsmanna félagsins á fundi sínum á Hilton Nordica hóteli nú rétt í þessu. Samkvæmt upplýsingum mbl.is var tillagan samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða.

Tillagan gengur út á að tuttugu starfsmenn fái greidda kaupauka upp á tæp­lega 1,5 millj­arð króna sam­an­lagt.

Að stóru leyti er um að ræða sömu starfs­menn og þegar hafa fengið greidda tugi millj­óna króna í kaupauka vegna nauðasamn­inga Kaupþings um síðustu ára­mót. Starfs­menn­irn­ir eiga í vænd­um enn frek­ari greiðslur tak­ist að há­marka virði óseldra eigna fé­lags­ins og þar með endur­heimt­ur. Í sum­um til­fell­um geta starfs­menn fengið um og yfir 100 millj­ón­ir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert