Ferðamaður ætlaði að sofa við bæjarkirkjuna

Frá Höfn í Hornafirði.
Frá Höfn í Hornafirði. mbl.is/Golli

Lögreglumenn á Höfn í Hornafirði höfðu afskipti af ferðamanni sem hafði gert sér svefnstað á bekk fyrir utan Hafnarkirkju í bænum. Manninum var bent á tjaldsvæðið og tók hann ábendingunni vel og taldi það góða lausn á gistimálum sínum.

Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Þá segir frá því, að komið hafi verið að dauðu lambi í kanti hringvegarins við Höfn í vikunni. Af ummerkjum að dæma mátti vera ljóst að bifreið hefði verið ekið á lambið en ökumaður ekki látið vita og ekki liggur fyrir hver hann er, að sögn lögreglu.

Einnig segir frá því, að kona hafi slasast á mjöðm þegar hún varð á milli bíls og veggjar á þvottaplani á Hvolsvelli síðastliðinn föstudag.

Þá voru höfð afskipti af ökumanni leigubifreiðar við Gullfoss sem var með nokkra farþega. Hann gat ekki framvísað rekstrarleyfi og var kærður fyrir brot á lögum um leigubifreiðar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert