Gæti þýtt gjaldþrot Norðurþings

Valgerður Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Valgerður Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Valgerður Gunnarsdóttir, lýsti áhyggjum sínum á Alþingi í dag af framkvæmdum á Bakka við Húsavík vegna niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í ágúst að stöðva framkvæmdir við Þeistareykjalínu 1 og Kröflulínu 4. Staða málsins gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir Norðurþing, sveitarfélögin í kring og ríkissjóð.

„Gerður hefur verið fjárfestingarsamningur við PCC SE sem felur í sér að ríkisstjórnin skuldbatt sig til að koma í veg fyrir að nokkuð það gæti komið upp sem gæti haft þær afleiðingar að þetta verkefni stöðvaðist með þeim afleiðingum sem það hefði í för með sér. Þær afleiðingar eru m.a. þær að sveitarfélagið Norðurþing gæti orðið gjaldþrota. Ef þessar framkvæmdir yrðu stöðvaðar gæti það líka haft það í för með sér að ríkissjóður yrði að greiða milljarða í skaðabætur. Við megum ekkert við því,“ sagði þingmaðurinn.

Þess utan væri staðan sem upp væri komin til þess fallin að eyðileggja orðspor Íslands sem lands sem vænlegt væri að stofna til atvinnustarfsemi í. „Allt þetta er í deiglunni núna ef ekkert verður að gert. Hins vegar hafa sveitarstjórnarmenn fundað með aðilum sem þetta varðar og ég hef þau orð hæstvirts iðnaðar- og viðskiptaráðherra að unnið sé að því hörðum höndum að koma í veg fyrir þennan skaða. Við skulum gera okkur grein fyrir því að samningsaðilar okkar, Þjóðverjar í þessu tilfelli, hafa enga þolinmæði til lengri tíma. Þeir skilja ekki svona vinnubrögð.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert