Fór út að skima eftir norðurljósum

Douglas Dakota DC-3 flugvélarflakið á Sólheimasandi.
Douglas Dakota DC-3 flugvélarflakið á Sólheimasandi. mbl.is/Jónas Erlendsson

Rannsókn á banaslysinu á Suðurlandsvegi á Sólheimasandi miðar vel. Karlmaðurinn sem lést var kínverskur ferðamaður fæddur 1971. Samkvæmt kínverskum fjölmiðlum hét hann Yue Yuen Choy og bjó í Hong Kong.

Frétt mbl.is: Útskot fyrir ferðamenn í skoðun

Hann var í hópi 10 Kínverja sem voru á ferðalagi um Ísland á tveimur bílum. Skömmu fyrir slysið stöðvaði hópurinn á Sólheimasandi rétt hjá þeim stað þar sem slóði niður að flugvélaflakinu fræga er. Þar var bílunum lagt fyrir utan veg og öll ljós slökkt. Hinn látni, við annan mann fór út, að talið er, til að skima eftir norðurljósum.

Sendiráð Kína hefur séð um samskipti við aðstandendur hins látna og lögreglu, segir í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Frétt South China Morning Post

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert