52% vilja áfram kynskipt salerni

Þegar afstaða er skoðuð eftir stjórnmálaflokkum sést að stuðningsfólk Pírata …
Þegar afstaða er skoðuð eftir stjórnmálaflokkum sést að stuðningsfólk Pírata er lang líklegast til að vera fylgjandi (44%) því að afnema kynjamerkingar á almenningssalernum. Af Wikipedia

Þegar spurt var í könnun MMR hversu fylgjandi eða andvígir Íslendingar voru því að merkingar fyrir kyn yrðu fjarlægðar af salernum á almenningsstöðum kom í ljós að tæp 52% voru andvíg því að kynjamerkingar væru fjarlægðar af almenningssalernum. Einungis 21,4% Íslendinga kváðust vera fylgjandi og þar af um helmingur mjög fylgjandi.

Nokkuð mikill munur var á afstöðu hópa eftir lýðfræðihópum. Yngri aldurshópar voru líklegri en eldri aldurshópar til að vera fylgjandi því að kynjamerkingar væru fjarlægðar af almenningssalernum en 33,6% fólks á aldrinum 18-29 ára kváðust fylgjandi á meðan 9,6% fólks 68 ára og eldri voru fylgjandi. Athygli vekur að námsmenn voru áberandi líklegri til að vera fylgjandi en aðrir hópar en 44,1% þeirra kváðust fylgjandi og 26,8% andvíg. Fólk búsett á höfuðborgarsvæðinu (24,3%) reyndist jafnframt líklegra til að vera fylgjandi heldur en fólk á landsbyggðinni (16,2%).  

Þegar afstaða er skoðuð eftir stjórnmálaflokkum sést að stuðningsfólk Pírata er lang líklegast til að vera fylgjandi (44%). Stuðningsfólk Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins eru áberandi líklegust til að vera andvíg en einungis 9% Framsóknarmanna og 11,5% Sjálfstæðismanna reyndust fylgjandi því að merkingar fyrir kyn væru fjarlægar af salernum á almenningsstöðum. 

Spurt var: Almennt séð, hversu fylgjandi eða andvíg(ur) ertu því að merkingar fyrir kyn verði fjarlægðar af salernum á almenningsstöðum? 
Svarmöguleikar voru: Mjög andvíg(ur); Frekar andvíg(ur); Hvorki nér; Frekar fylgjandi; Mjög fylgjandi; Veit ekki/vil ekki svara.

Samtals tóku 97% afstöðu til spurningarinnar.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 905 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 13. til 19. september 2016

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert