Eygló stefnir á varaformanninn

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra. mbl.is/Styrmir Kári

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hyggst gefa kost á sér sem varaformaður Framsóknarflokksins að því gefnu að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verði ekki endurkjörinn formaður flokksins.

Þetta tilkynnti Eygló á Facebook-síðu sinni fyrir stundu. Þar segir hún að fjölmargir flokksmenn hafi kallað eftir breytingum á forystu flokksins og því kalli hafi nú verið svarað.

Eygló vísar þar til þess að Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, tilkynnti í gær að hann hygðist gefa kost á sér í formannsembættið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert