Skjálfti af stærðinni 2,9 mældist 2,2 km norðan við Hveragerði í norðanverðum Rjúpnabrekkum kl. 12.31. Samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofu Íslands fannst skjálftinn vel í Hveragerði en tilkynningar þess efnis bárust í gegnum vefinn.
Engir eftirskjálftar hafa fylgt.