Aldrei færri tilkynningar um innbrot

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust 47 tilkynningar um innbrot í ágúst en ekki hafa borist jafn fáar tilkynningar í einum mánuði frá því að samræmdar skráningar brota hófust hjá lögreglu árið 1999. Þá fækkaði tilkynntum kynferðisafbrotum einnig. Þetta leiðir afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir ágústmánuð í ljós.

Í skýrslunni þar sem tölfræðin er birt eru teknar saman upplýsingar um helstu afbrot sem lögreglu hafa verið tilkynnt. Er þar fjallað er um þróun síðustu 13 mánaða og tölurnar það sem af er ári bornar saman við sama tímabil síðustu þriggja ára.

Sex tilkynnt kynferðisbrot í ágúst

Skráðar voru alls 626 tilkynningar um hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í mánuðinum en það er fækkun á milli mánaða. Þar af bárust 282 tilkynningar um þjófnaði sem gera um 45 prósent allra tilkynntra hegningarlagabrota. Tilkynntum kynferðisbrotum fækkaði einnig töluvert á milli mánaða en tilkynnt var um sex kynferðisbrot í ágústmánuði sem eru um fimm sinnum færri brot en í júlí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert