Flutt á bráðamóttöku eftir árekstur

Konan var flutt á Landspítalann.
Konan var flutt á Landspítalann. mbl.is/Ómar Óskarsson

Kona sem flutt var með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unn­ar á Landspítalann eftir bílslys rétt norðan við Borgarnes er á bráðamóttöku spítalans samkvæmt upplýsingum þaðan.

Konan, sem er íslensk og á sextugsaldri, var í sjúkrabíl þegar hann og jepplingur lentu í hörðum árekstri á Vest­ur­lands­vegi, 11 km norður af Borg­ar­nesi, í hádeginu.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á vettvang og flutti konuna með sjúkraflugi til Reykjavíkur.

Harður árekstur á Vesturlandsvegi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert