Fordæma allt dýraníð

Svavar Halldórsson.
Svavar Halldórsson. mbl.is/Styrmir Kári

Landssamtök sauðfjárbænda fordæma allt dýraníð og meðferðin á lambinu sem lýst er í frétt mbl.is er til háborinnar skammar, segir Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda.

„Hér á landi gilda ströng lög og reglur um meðferð dýra og þetta virðist augljóst brot á þeim. Samtökin hvetja alla þá sem urðu vitni að atburðunum að gefa sig umsvifalaust fram við lögreglu,“ segir Svavar ennfremur.

Frétt mbl.is: Grunur um dýraníð í Hörgársveit

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert