„Hroki gamaldags háskólaprófessora“

Ólafía Rafnsdóttir, formaður VR.
Ólafía Rafnsdóttir, formaður VR.

„Ég frábið mér hroka þessara miðaldra karlkyns prófessora sem telja sig þess umkomna að segja mér og öðrum konum að launamunur kynjanna sé ekki til,“ segir Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, í pistli á síðu félagsins sem ber fyrirsögnina Hroki gamaldags háskólaprófessora.

Ólafía vísar þar til Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar og Ragnars Árnasonar, prófessora við Háskóla Íslands, sem hún segir „halda á lofti þeim skoðunum að tölfræði um launamuninn sé blekking og að niðurstöður launakannana séu markleysa.“

Frétt mbl.is: Launamunur „gæfumunur“ kynjanna?

Frétt mbl.is: Var aðeins að kynna önnur sjónarmið

Í fyrirlestri nýlega fjallaði prófessor við HÍ um þá skoðun að launamunur kynjanna sé tölfræðileg blekking og að konur velji hlutastörf og lægra launuð störf til að sinna því hlutverki sínu að vera mæður. Í nýlegri grein í Frjálsri verslun – tölublaði sem helgað var framgangi kvenna í samfélaginu – sagði annar prófessor við HÍ að niðurstöður launakannana sem sýna launamun kynjanna séu tölfræðileg markleysa og að engu hafandi í skynsamlegri umræðu,“ segir Ólafía.

„Hvað vakti fyrir þessum prófessorum verða þeir að svara fyrir sjálfir en ljóst er að þetta framlag þeirra skilar okkur ekkert áleiðis í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna. Árlegar kannanir stéttarfélaga eins og VR og viðamikil könnun aðgerðarhóps stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti sem gerð var 2014 virðast ekki falla í kramið. Eða e.t.v. eru það niðurstöðurnar sem ekki falla í kramið.“

Ólafía segir óleiðréttan launamun sýna ólíka stöðu kynjanna á vinnumarkaði.

„Konur og karlar eru í ólíkum störfum, vinna mislangan vinnutíma og eru með ólíka reynslu og menntun. Innan VR er þessi munur um 14%, samkvæmt launakönnun félagsins. Þessi munur segir okkur mikið um stöðu kvenna á vinnumarkaði og misjöfn tækifæri kynjanna til starfa og framgangs.

Kynbundni munurinn, þar sem búið er að taka tillit til allra þessara þátta og fleiri til, er 10% innan VR í ár. Þarna er búið að taka tillit til vinnutímans, starfsins, atvinnugreinarinnar, menntunar kynjanna, aldurs og starfsaldurs, mannaforráða og vaktavinnu. Þessi munur sýnir okkur einfaldlega að karlar og konur fá ekki sömu laun fyrir sömu vinnu. Hvernig er hægt að horfa fram hjá þessu?“ spyr formaður VR.

Hún segir samfélagið hljóta að gera þá kröfu til kennara á háskólastigi að þeir kynni sér allar hliðar mála áður en þeir fjalla um þau og vandi til verka þegar þeir taka þátt í umræðunni.

„Góðir kennarar kynna nemendum sínum allar hliðar mála og hvetja til umræðu um lausnir. Einnig hljótum við að gera þá kröfu til menntastofnana – ekki síst á háskólastigi  að kennarar þeirra valdi því vandasama verki að leiðbeina ungu fólki. Ábyrgð þeirra er mikil.

Ég frábið mér hroka þessara miðaldra karlkyns prófessora sem telja sig þess umkomna að segja mér og öðrum konum að launamunur kynjanna sé ekki til. Ég er til í að ræða við þá málin  þegar þeir hafa öðlast skilning á því hvað það þýðir að vera kona í karlaheimi.“

Pistil Ólafíu má finna á vef VR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert