Harður árekstur í Hafnarfirði

Ekki urðu alvarleg meiðsli á fólki.
Ekki urðu alvarleg meiðsli á fólki. mbl.is/Malín

Árekstur varð nú um miðjan daginn á gatnamótum Hjallabrautar og Reykjavíkurvegs í Hafnarfirði. Engin alvarleg meiðsl urðu á fólki.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var um að ræða árekstur tveggja bíla. Áreksturinn var nokkuð harður og fólkið úr bílunum sent til skoðunar á slysadeild en talið er að þau hafi sloppið með minniháttar meiðsl. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert