Kjör Trump ekki endalok NATO

Donald Trump, nýr forseti Bandaríkjanna. Vangaveltur hafa verið uppi um …
Donald Trump, nýr forseti Bandaríkjanna. Vangaveltur hafa verið uppi um stöðu NATO eftir að hann var kosinn, en Magnus Nordenman segir kjör hans ekki upphafið að endalokum NATO. Frekar megi gera ráð fyrir áherslubreytingum. AFP

Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum munu væntanlega ekki hafa mikil áhrif á veru Bandaríkjanna í NATO eða marka enda sambandsins. Aftur á móti gætu orðið nokkrar áherslubreytingar sem snúast helst um aukna þátttöku annarra landa en Bandaríkjanna og frekari fjárframlög í samstarfið. Þetta segir Magnus Nordenman, deildarstjóri Transatlantic Security Initiative hjá Atlantic Council í Washington.

Nordenman var einn fyrirlesara á fundi Varðbergs, NEX­US - rannsóknarvettvangs á sviði öryggis- og varnarmála og Alþjóðamála­stofn­un­ar Há­skóla Íslands í Þjóðminja­safn­inu í dag.

Hann sagði áhersluatriði Trump í tengslum við NATO væntanlega ráðast mikið af því hvaða fólk hann veldi sem ráðherra, en aðrar NATO-þjóðir megi búast við því að óskað verði eftir því að byrðunum af samstarfinu verði dreift meira en gert er í dag.

Þá sagði hann nauðsynlegt að NATO-þjóðir væru duglegri að koma sér á framfæri í Washington, en hann taldi að sérfræðingar í málefnum NATO væru aðeins um 50 talsins í höfuðborg Bandaríkjanna. Því væri þekking í stjórnkerfinu ytra ekkert rosalega mikil þrátt fyrir mikilvægi samstarfsins. Sagði hann samstarfið því krefjast aukinna samskipta og heimsókna.

Nordenman sagði líklegt að meira myndi sjást til Bandaríkjanna í Evrópu á næstunni, en það væri væntanlega í formi tímabundinnar viðveru í stað langtímaveru. Þó mætti gera ráð fyrir að bandarísk yfirvöld myndu í auknum mæli sækjast eftir staðbundinni samvinnu. Nefndi hann t.d. að Noregur og Ísland myndu koma meira að eftirlitsflugi á Norður-Atlantshafi. Slíkt samstarf væri klárlega eitthvað sem Bandaríkin væru áhugasöm um. Benti hann á að svipað fyrirkomulag væri í málefnum Bandaríkjanna við Svartahaf og í Eystrasaltslöndunum.

NATO herskip í Reykjavíkurhöfn fyrr á þessu ári.
NATO herskip í Reykjavíkurhöfn fyrr á þessu ári. Árni Sæberg
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert