Segir fundinn í dag úrslitafund

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata.
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata. mbl.is/Golli

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, segir fund flokkanna fimm sem eru í stjórnarmyndunarviðræðum sem verður haldinn síðar í dag, vera úrslitafund.

Þetta kom fram í samtali hennar við Rúv.  

Fundurinn hefst klukkan 16 og verður haldinn í Alþingishúsinu eins og fyrri fundur forsvarsmanna flokkanna í morgun.

Miðað við orð hennar má búast við því það ráðist eftir fundinn hvort flokkarnir fimm muni mynda ríkisstjórn eða ekki.

Síðan fyrri fundinum lauk fyrir hádegi hafa flokkarnir fimm fundað hver í sínu lagi til að ráða ráðum sínum.

Frétt mbl.is: „Nú þarf að taka ýmsar ákvarðanir“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert