Enginn fundur hjá Sjálfstæðisflokknum

Guðlaugur Þór Þórðarson gerir ekki ráð fyrir að þingmenn Sjálfstæðisflokksins …
Guðlaugur Þór Þórðarson gerir ekki ráð fyrir að þingmenn Sjálfstæðisflokksins fundi fyrr en á morgun. mbl.is/Eggert

Enginn fundur hefur enn verið boðaður hjá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins eftir óformlegar viðræður formanna Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar í gær. Þetta staðfestir Guðlaugur Þór Þórðarson, oddviti flokksins í Reykjavík norður.

Ég á ekki von á að við fundum neitt fyrr en á morgun,“ sagði Guðlaugur Þór í samtali við mbl.is. Þetta er eins og komið hefur fram í fjölmiðlum og ég vona bara að menn hafi vit á því að grandskoða þetta áður en þeir fara í einhverjar fleiri æfingar.“

Mbl.is greindi frá því fyrr í dag að formenn flokkanna þriggja hefðu legið undir feldi í dag eftir viðræður gærdagsins. Þing­menn Viðreisn­ar voru síðan boðaðir á fund nú síðdegis, en það átti að gera þegar eitt­hvað lægi fyr­ir eft­ir sam­ræður formanna flokk­anna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert