Las upp vitlaust ártal á þingi

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis. mbl.is/Golli

„Í lok þessa síðasta þingfundar ársins 2015, færi ég þingmönnum öllum...“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, þegar hann las upp sérstakt jólakveðjuávarp á þingi seint í gærkvöldi.

Heyrðist þá kallað fram úr sal: „2016!“

Steingrímur leiðrétti sig þá um leið en svaraði að bragði: „Það stendur fimmtán hérna í handritinu“ og brutust þá út mikil hlátrasköll í þingsal.

Sjá má atvikið upp úr fjórðu mínútunni í spilaranum hér að neðan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert