Perlan í Lækjarbrekku

Bankastræti 2, Lækjarbrekka.
Bankastræti 2, Lækjarbrekka. mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Veitingahúsið Perlan ehf. hefur fest kaup á rekstri Lækjarbrekku við Bankastræti og tekur við honum 1. janúar 2017.

Bjarni Ingvar Árnason veitingamaður sagði að rekstrinum í Perlunni ljúki á gamlárskvöld með 650 manna áramótaveislu. Veitingahúsið Perlan var opnað 21. júní 1991, fyrir rúmum 25 árum, og hefur notið mikilla vinsælda. Perlan hefur verið nær fullbókuð allan nóvember og desember. „Fólk fylkti liði til að kveðja staðinn sinn þegar fréttist að það ætti að loka honum,“ sagði Bjarni.

Í umfjöllun um vistaskiptin í Morgunblaðinu í dag segir hann það leggjast vel í sig að hefja aftur rekstur í miðbænum enda var Bjarni með rekstur þar samfellt í 41 ár, m.a. í Brauðbæ, Hóteli Óðinsvéum og á Prikinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert