Stefna MAST, UST og Arnarlaxi

Náttúruvernd 1 segir að afar sterkar líkur standi til þess …
Náttúruvernd 1 segir að afar sterkar líkur standi til þess að eldi með norskættaðan lax í opnum sjókvíum hér við land muni skaða varanlega náttúrulega laxastofna. Myndin er úr safni. mbl.is/Helgi

Málsóknarfélagið Náttúruvernd 1 hefur birt Matvælastofnun (MAST), Umhverfisstofnun (UST) og Arnarlaxi hf. stefnu þar sem krafist er ógildingar rekstrar- og starfsleyfa vegna sjókvíaeldis á norskættuðum laxi í Arnarfirði, en leyfin voru gefin út fyrr á þessu ári.

Að Náttúruvernd 1 standa aðilar með hagsmuni sem stafar hætta af þessu sjókvíaeldi á laxi, meðal annars eigendur veiðiréttinda í lax- og silungsveiðiám, bæði í næstu nálægð við stöðina en einnig fjær.

Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur 10. janúar, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu.

Óttast að eldi með norskættaðan lax muni skaða náttúrulega laxastofna varanlega

Þar segir ennfremur, að  málssóknin sé bæði reist á röksemdum um að ekki hafi verið gætt réttra aðferða við útgáfu leyfanna svo sem með því að afla mats á burðarþoli náttúrunnar og skilríkja til afnota hafsins eins og lög mæla fyrir um. Einnig sé byggt á efnislegum röksemdum svo sem að ekki hafi verið til að dreifa gildri heimild að lögum til að gefa leyfin út, starfsemin fari gegn gegn ákvæðum laga, m.a. náttúruverndarlaga og laga um fiskeldi og loks að rekstur þessarar stöðvar fari í bága við einkaréttarlega hagsmuni þeirra sem að málssóknarfélaginu standa.

„Afar sterkar líkur standa til þess að eldi með norskættaðan lax í opnum sjókvíum hér við land muni skaða varanlega náttúrulega laxastofna. Benda upplýsingar frá Noregi til þess að þetta megi telja nánast öruggt. Málsóknin er því meðal annars byggð á því að Arnarlaxi hf. sé óheimilt að stunda starfsemi, sem líkleg sé til að valda slíku tjóni. Að mati stefnanda stendur málið, þegar til frambúðar er litið, um val á milli þess að stunda annað hvort þá starfsemi sem Arnarlax hf. stundar og til stendur að stunduð verði víðar við landið, eða viðhalda nýtingu lax- og silungsveiðihlunninda í íslenskum veiðiám með náttúrulegum stofnum,“ segir í tilkynningunni.

Jafnframt segir, að við þingfestingu málsins verði lögð fram umfangsmikil gögn sem varði hættuna á skaða sem svona stöð valdi á umhverfinu, einkum vegna laxa sem óhjákvæmilega sleppa úr kvíunum. Þar komi við sögu bæði rannsóknir og reynsla frá öðrum löndum, m.a. Noregi, en stærstu eigendur hins stefnda félags, sem hyggst reka sjókvíaeldið í Arnarfirði, eru einmitt norskir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert