Skora á ráðherra að opna suðvesturbrautina

Sjúkraflugvél Mýflugs lendir á suðvestur/norðausturbrautinni í sterkri suðvestanátt í fyrra. …
Sjúkraflugvél Mýflugs lendir á suðvestur/norðausturbrautinni í sterkri suðvestanátt í fyrra. Nú er búið að loka þessari flugbraut. mbl.is/RAX

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna skorar á innanríkisráðherra að beita sér fyrir því að suðvesturbrautin á Reykjavíkurflugvelli verði opnuð á ný hið fyrsta.

Greint var frá því á miðvikudag að sjúkra­flug­vél Mý­flugs, sem flytja átti sjúk­ling frá Höfn í Hornafirði til Reykja­vík­ur, hafi verið flogið til Ak­ur­eyr­ar vegna veðurs. Haft var eft­ir Þor­keli Ásgeiri Jó­hanns­syni, flug­stjóra hjá Mý­flugi að við ríkj­andi veðuraðstæður hefði verið hægt að lenda á suðvest­ur­braut­inni, sem gjarnan er nefnd neyðarbraut, en henni var lokað í sum­ar. 

Í áskorun sem stjórn Landsamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna sendi frá sér í dag er lýst yfir þungum áhyggjum af því ástandi sem skapast hefur í sjúkraflugi á Íslandi. Lokun neyðarbrautarinnar feli í sér að aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að bestu mögulegu heilbrigðisþjónustu á landinu hafi verið skert.

„Er þetta ástand með öllu óásættanlegt, sérstaklega í ljósi þess að brautin er til staðar og fátt því til fyrirstöðu að hægt sé að hafa hana opna þegar veðurskilyrði krefjast þess,“ segir í áskoruninni.

„Á árinu sem er að líða hafa verið farin 666 sjúkraflug með 703 sjúklinga og nú þegar hefur lokun neyðarbrautarinnar komið í veg fyrir að sjúkraflug í hæsta forgangi hafi getað komið sjúklingi á Landspítalann.“

Skorar sambandið því næst á innanríkisráðherra að beita sér fyrir opnun flugbrautarinnar hið fyrsta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert