Handtekinn fyrir heimilisofbeldi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann fyrir heimilisofbeldi skömmu eftir miðnætti í nótt og gistir hann fangaklefa. Lögregla mun ræða við manninn nú í morgunsárið.

Fjórir ökumenn voru stöðvaðir í gærkvöldi fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Allir voru þeir látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku. Í einu tilviku voru tekin fíkniefni af farþega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert