Viðbótarframlagið verði ekki tímabundið

Rektorar íslensku háskólanna.
Rektorar íslensku háskólanna. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

„Rektorar íslenskra háskóla fagna þeirri ákvörðun Alþingis að hækka fjárframlög til háskólanna við afgreiðslu frumvarps til fjárlaga 2017 og koma þannig til móts við áskorun rektora til þingmanna um að bæta úr undirfjármögnun íslensks háskólakerfis,“ segir í tilkynningu frá rektorum íslenskra háskóla.  

„Rektorarnir taka undir ákvæði í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar sem kveða á um eflingu allra skólastiga og að styðja skuli háskólana í að halda uppi gæðum og standast alþjóðlega samkeppni um leið og samvinna og samhæfing íslenskra háskóla- og vísindastofnana verður aukin,“ segir ennfremur í tilkynningu.  

Rektorar taka einnig undir að „endurskoða þurfi reiknilíkan háskólakerfisins því að forsenda þess að háskólar á Íslandi geti haldið uppi gæðum og staðist alþjóðlega samkeppni er sú að þeir búi við sambærilega fjármögnun og háskólar í nágrannalöndum okkar.“

Þeir segja einnig mikilvægt að viðbótarframlagið sem kveðið er á um að það „verði ekki tímabundin aðgerð heldur einungis fyrsta skrefið í markvissri áætlun um bætta fjármögnun háskólanna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert