Fluttur á slysadeild með brunasár

Einn var fluttur á slysadeild með minni háttar brunasár eftir að eldur kom upp í eldavél í íbúð við Lækjarhjalla í Kópavogi um níuleytið í kvöld. 

Að sögn varðstjóra í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins náði íbúi að slökkva eldinn með handslökkvitæki og ekki urðu miklar skemmdir á innanstokksmunum en um talsverðan reyk var að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert