Börn send heim vegna manneklu

Sum leikskólabörn þurfa að vera heima á næstu dögum.
Sum leikskólabörn þurfa að vera heima á næstu dögum. mbl.is/Golli

Börn á nokkrum leikskólum í Reykjavík þurfa að vera heima í að minnsta kosti þrjá daga á næstu fimm vikum vegna manneklu.

Einn af þeim skólum sem hafa þurft að grípa til slíkra aðgerða er leikskólinn Heiðarborg í Árbæ, en þar vantar í eitt og hálft stöðugildi. Næstu fimm vikurnar þarf hvert barn á leikskólanum að vera heima í þrjá daga.

Ástandið á Heiðarborg er ekki einsdæmi, en grípa hefur þurft til sambærilegra aðgerða á fleiri leikskólum í borginni, að því er fram kemur í umfjöllun um ástandið í leikskólum borgarinnar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert